Tugir almennra borgara felldir við hjálparmiðstöð

Ísraelsher er sagður hafa fellt meira en 50 óbreytta Palestínumenn nærri hjálparmiðstöð á suðurhluta Gasasvæðisins.

Talsmaður almannavarna á Gasasvæðinu segir í samtali við AFP-fréttaveituna að að minnsta kosti 53 hafi látið lífið og um 200 særst þegar þúsundir Palestínumanna söfnuðust saman til að taka við mjöli nærri hjálparmiðstöð í Khan Yunis.

Mohammad Abu Amer, sem var staddur á vettvangi, segir í …
Mohammad Abu Amer, sem var staddur á vettvangi, segir í samtali við AFP-fréttaveituna að um hafi verið að ræða ósköp venjulegt óvopnað fólk. AFP

Drápu það með köldu blóði

„Ísraelskir drónar skutu á borgarana. Nokkrum mínútum síðar skutu ísraelskir skriðdrekar nokkrum skotum á þá. Fjöldi fólks lést eða særðist.“

Mohammad Abu Amer, sem var staddur á vettvangi, segir í samtali við AFP-fréttaveituna að um hafi verið að ræða ósköp venjulegt, óvopnað fólk.

„Fólkið fór að sækja brauð og hveiti handa börnunum sínum og ísraelskar hersveitir drápu það með köldu blóði.“

Ísraelski herinn segist vera að skoða skýrslur vegna atviksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert