Sjálflærður „tannlæknir“ þjónustaði tugi án réttinda

Tugir sjúklinga leituðu aðstoðar á stofunni.
Tugir sjúklinga leituðu aðstoðar á stofunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tékkneskur maður og tveir aðstoðarmenn hans hafa verið ákærðir fyrir að reka gervitannlæknastofu í tvö ár.

Maðurinn, sem er 22 ára, opnaði ásamt tveimur í fjölskyldu sinni fullútbúna tannlæknistofu án tilskilinna réttinda í bænum Havlicuk Brod í Tékklandi árið 2023.

Þá sinnti stofan hefðbundnum skoðunum en jafnframt dró maðurinn tennur úr fólki, boraði í tennur, framkvæmdi rótfyllingar og deyfði. 

Lærði fagið á netinu

Hinn ákærði segist hafa lært fagið á netinu en tugir sjúklinga leituðu til hans og var hagnaður tannlæknastofunnar á þriðja tug milljóna.

Lögregla í Tékklandi stöðvaði starfsemi stofunnar fyrr í mánuðinum og ákærði þremenningana fyrir ólögmæta starfsemi, peningaþvott, eiturlyfjasölu, tilraun til líkamsárásar og þjófnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert