Samtök sem sjá um að bjarga fólki á hafi úti segjast hafa bjargað meira en 175 þúsund manns í Miðjarðarhafi síðustu 10 árin.
Á þessum tíma hefur mikill fjöldi flóttamanna reynt að fara yfir Miðjarðarhafið til Evrópu.
Um er að ræða 21 samtök og að þeirra sögn hafa að minnsta kosti 28.932 manneskjur dáið við að reyna að komast yfir hafið. Meirihlutinn hefur dáið í sjónum á milli Líbíu, Túnis, Ítalíu og Möltu.
Þessu greindi Mirka Schaefer frá þýsku samtökunum SOS Humanity frá á blaðamannafundi í Berlín. Á umræddu hafsvæði þar sem meirihlutinn hefur dáið jafngilda dauðsföllin því að fimm fullorðnir einstaklingar og eitt barn hafi látist þar á hverjum degi síðasta áratuginn.
10 af þessum 21 samtökum eru með bækistöðvar í Þýskalandi.