22.000 lítrar af áfengi á eyðieyju

Eldfjallið Beerenberg, nyrsta virka eldfjall heims, gnæfir upp úr eyjunni …
Eldfjallið Beerenberg, nyrsta virka eldfjall heims, gnæfir upp úr eyjunni Jan Mayen þangað sem um 1.000 kílómetrar eru frá vesturströnd Norður-Noregs. Til Jan Mayen verður flutt metmagn af áfengi í ár og næstu tvö ár á eftir. Ljósmynd/Wikipedia.org/Dreizung

Norski herinn sækir árlega um leyfi til að flytja þúsundir lítra til eyðieyjar um eitt þúsund kílómetra vestur af fastlandinu svo þeir tæplega 20 manns sem starfa þar, sex mánuði í senn, geti leyft sér örlitla brjóstbirtu þegar þeir ekki standa sínar vaktir.

Eyjan umrædda er Jan Mayen, aðeins 377 ferkílómetrar að flatarmáli, en þó ekki ómerkari en svo að hún gumar af nyrsta virka eldfjalli heims, Beerenberg, sem síðast rumskaði fyrir 40 árum, árið 1985.

Jan Mayen telst samkvæmt skilgreiningu eyðiey, þar hefur enginn fasta búsetu, en norska veðurstofan Meteorologisk institutt hefur þar veðurathugunarfólk á sínum snærum og herinn sér um að halda flugvelli þar nothæfum auk þess að tryggja viðveru af hálfu Noregs við norðurheimskaut. Fylkismaðurinn í Nordland-fylki annast stjórnsýsluleg málefni eyjarinnar sem varð hluti af Noregi 27. febrúar 1930 með konungstilskipun frá 8. maí 1929.

Legðust allir starfsmenn í dagdrykkju...

Þrátt fyrir að hvorki finnist útibú norsku áfengisverslunarinnar Vinmonopolet á Jan Mayen, né aðrar verslanir, er hægt að kaupa þar áfengi og fara þau kaup fram gegnum sérstakan samning hersins og norskra stjórnvalda.

Hljóðar samningurinn upp á áfengismagn sem nemur tæplega 10.000 lítrum ár hvcrt til handa því starfsfólki sem samningur hersins nær til, en rétt er að geta þess að herinn hefur aldrei sótt um svo mikið sem fyrir 2025. Hljóðar áfengiskvóti ársins, sem stjórnvöld lögðu blessun sína yfir, upp á 7.254 lítra af bjór og öðru áfengi með lítið vínandainnihald, 1.293 lítra af léttvíni, 567 lítra af styrktum vínum og 846 lítra af sterku áfengi.

Legðust allir nítján starfsmennirnir, sem samningurinn við herinn nær til, í dagdrykkju gæti hver og einn því drukkið – væri magninu jafnt deilt – um fjóra cl af sterku áfengi, þrjá cl af styrktu áfengi, 5,4 cl af léttvíni og 2,7 dl af bjór og öðru lágvínandaáfengi.

Reglurnar eru þó stífari en svo að allir geti drukkið stíft alla daga útskýrir Hanne Stine Kind, upplýsingafulltrúi stafrænnar deildar hersins, Cyberforsvaret sem svo nefnist, fyrir norska ríkisútvarpinu NRK.

Fólk geti þó drukkið á vinnustaðnum

„Kvótinn miðast við réttláta skiptingu og er ætlað að hindra ofdrykkju,“ segir upplýsingafulltrúinn, „kvótinn fyrir Jan Mayen er reiknaður út frá áfengisnotkun hverrar manneskju mánuði,“ heldur Kind áfram og segir fyrirkomulagið þannig að starfsfólkið kaupi áfengið af norska ríkinu á sínum vinnustað.

Vitanlega sé engum leyfilegt að neyta áfengis á vakt og ekki síðustu átta klukkustundirnar áður en vakt hefst. Fólk geti þó drukkið á vinnustaðnum, enda hefst það við þar meira og minna allan sólarhringinn. Þá sé áfengi haft um hönd í bústaðaferðum, hinum annáluðu norsku „hyttetur“ ferðum, en líklega er Jan Mayen nyrsta staðsetning sumarbústaða heimsbyggðarinnar, í afmælisveislum starfsmanna, hvers kyns gleðskap öðrum og við trúarleg tilefni á borð við jól og páska.

Á þessu ári og til og með þess þarnæsta, 2027, eykst áfengisflóðið á Jan Mayen þó um allan helming, rúmlega tvöfaldast í raun, þegar verktakinn Hæhre Arctic tekur til við að reisa nýja stöðvarbyggingu fyrir um hálfan annan milljarð norskra króna, upphæð sem svarar til tæpra 19 milljarða íslenskra króna. Hefur verktakinn farið fram á öllu meira áfengismagn fyrir sitt starfsfólk en norski herinn, auk þess sem einfaldleikinn situr þar í fyrirrúmi, 3.000 lítrar af brennivíni og 9.000 af bjór.

Árið 2025 sögulegt á Jan Mayen

Það var vefmiðillinn Anlegg.no sem fyrstur greindi frá umsókn Hæhre Arctic, en talsmenn verktakans benda hins vegar á byggingardeild hersins, Forsvarsbygg, er þeir eru beðnir að útskýra áfengismagnið, enda telst herinn formlega hafa yfirumsjón með byggingu nýja stöðvarhússins.

„Forsvarsbygg er kunnugt um að verktaki okkar, Hæhre Arctic, hefur lagt fram umsókn um að fá að hafa áfengi sem hluta af þeim birgðum sem nýtast skulu meðan á þessu þriggja ára langa byggingarverkefni stendur,“ segir Randi-Grethe Pedersen, verkefnisstjóri hjá Forsvarsbygg, við NRK.

Kveður hún verktakann munu hafa tvö 32 starfsmanna teymi við störf á Jan Mayen og hafi hvort þeirra um sig sex vikna viðveru þar. „Áfengismagnið er heildarmagn fyrir allt starfsfólkið öll þrjú árin,“ útskýrir Pedersen og bætir því við að Forsvarsbygg hyggist ekki leggja fram umsókn um áfengiskvóta heldur leggja fyrir stafrænu deildina, Cyberforsvaret, að annast áfengispantanir fyrir verktakann sem hennar deild muni svo kaupa af þeirri stafrænu.

Árið 2025 verður því sögulegt á Jan Mayen að því leyti að það verður fyrsta árið sem annar aðili en norski herinn sækir um að fá áfengi flutt þangað. Þrátt fyrir að eyjan teljist norsk gilda þar sérstakar reglur um áfengisaðföng og -neyslu sem fylkismaðurinn í Nordland hefur eftirlit með að sé framfylgt.

NRK

NRK-II (framkvæmdirnar fram undan)

Anlegg.no

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert