Donald Trump Bandaríkjaforseti var ekki reiðubúinn að leggja blessun sína yfir afdráttarlausa yfirlýsingu um stuðning G7-ríkjanna við Úkraínu og til fordæmingar Rússlands í dag.
Talsmaður kanadískra stjórnvalda, sem eru gestgjafar G7-fundarins, segir Bandaríkjamenn hafa viljað stíga varlegar til jarðar og því ekki verið reiðubúnir að samþykkja yfirlýsinguna.
Segir hann Bandaríkin hafa viljað halda möguleikanum opnum á því að geta miðlað sáttum á milli ríkjanna tveggja.
Öll hin sex ríkin, Kanada, Japan, Þýskaland, Ítalía, Bretland og Frakkland, eru sögð hafa viljað gefa út yfirlýsinguna.
„Það kom í raun og veru engin yfirlýsing af því að Bandaríkin vildu þynna hana út,“ segir talsmaðurinn.