„Allir ættu að yfirgefa Teheran tafarlaust!“ skrifar Donald Trump Bandaríkjaforseti á sinn einkasamfélagsmiðil Truth Social þar sem hann er staddur á ráðstefnu G7-iðnríkjanna í Kanada.
Fer forsetinn ekki dýpra í málið en sem nemur þessari einu setningu, en vísar vitanlega til stríðsástands milli Ísraels og Írans, þar sem höfuðborgin er Teheran. Ísraelar hafa nú hert loftárásir sínar á Íran sem þeir hófu á föstudag og eins og mbl.is greindi frá fyrr í kvöld hófu Íranar árás á Ísrael fyrir nokkrum klukkustundum.
Hefur ísraelski herinn sent íbúum eins borgarhluta Teheran viðvörun og ráðlagt þeim að hafa sig þaðan án tafar vegna yfirvofandi árása og þykja þeir taktar minna töluvert á árásirnar á Palestínumenn á Gasasvæðinu sem nú eru meira og minna heimilislausir á vergangi.
Hefur Trump ítrekað færst undan því að svara fyrirspurnum um hvort Bandaríkin tækju þátt í hernaði Ísraela á hendur Írönum, en hefur gefið það út að þjóð hans hafi hvergi komið að þeim árásum sem þegar hafa átt sér stað.