Hafa endurheimt yfir 6.000 lík

Innanríkisráðherra Úkraínu hefur sakað Rússland um að flækja viljandi ferlið …
Innanríkisráðherra Úkraínu hefur sakað Rússland um að flækja viljandi ferlið við að bera kennsl á líkin. AFP

Yfirvöld í Kænugarði hafa greint frá því að þeim hafi borist 1.245 lík úkraínskra ríkisborgara frá Rússlandi í dag. Alls hefur Úkraína endurheimt yfir 6.000 lík undanfarna viku.

Um er að ræða síðasta áfangann í skiptum sem samið var um milli ríkjanna fyrr í mánuðinum í Istanbúl. Rússlandi bárust í dag 51 lík rússneskra hermanna frá Úkraínu og hefur alls fengið til baka 78 lík.

Rússneska varnarmálaráðuneytið greinir þó frá því að 1.248 lík hafi verið afhent Úkraínu í dag, sem eru þremur fleiri en Kænugarður segist hafa móttekið.

Segir Rússa viljandi gera auðkenningu erfiðari

Igor Klymenko, innanríkisráðherra Úkraínu, hefur sakað Rússland um að flækja viljandi ferlið við að bera kennsl á líkin og nefnir t.a.m. að líkamshlutar úr sama líki séu stundum í mismunandi pokum.

Hann bætir við að Úkraína hafi einnig fengið líkamsleifar rússneskra hermanna í bland við úkraínska á fyrri stigum skiptanna í síðustu viku.

Rússland hefur lýst sig reiðubúið að afhenda önnur 2.239 lík úkraínskra hermanna til viðbótar við það sem samið var um í Istanbúl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert