Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sagði G7-ríkin sameinuð í því að vilja frið á milli Ísraels og Írans. Leiðtogar ríkjanna funduðu í Kananaskis í Kanada í dag.
Þar var Donald Trump Bandaríkjaforseti staddur ásamt Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, Frederich Merz, kanslara Þýskalands og fleiri þjóðarleiðtogum.
„Mér finnst vera skýr afstaða til þess að draga úr spennu,“ sagði Starmer um viðleitni G7-ríkjanna til átaka Ísraels og Írans sem hafa staðið yfir undanfarna daga.
„Nú þurfum við að vera skýr í okkar markmiðum um það hvernig við viljum ná því fram,“ sagði Starmer.