Í heitum potti alla daga vikunnar

Verslunin Heitir pottar er opin alla daga vikunnar þar sem …
Verslunin Heitir pottar er opin alla daga vikunnar þar sem Ari Steinn Kristjánsson og Birkir Rafnsson standa vaktina. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Laugardagar og sunnudagar eru mjög þægilegir dagar til að versla. Það er minna áreiti og stress í borginni. Fólk kemur bara á sínum tíma, fær sér kaffibolla og kíkir á potta og sánur. Þá er svo gott að fara yfir málin í rólegheitum,“ segir Ari Steinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Heitir pottar ehf. en þar er opið alla daga vikunnar.

„Það eru margir sem komast ekki í svona stúss á virkum dögum og því viljum við hafa einnig opið um helgar svo allir komist til okkar. Á virkum dögum er opið hjá okkur frá 10-17 og um helgar er frá 10-15. Við erum líka með opið á rauðum dögum og höfum til dæmis verið með opið alla rauða daga það sem af er þessu ári. Það er því bókstaflega opið alla daga hjá okkur,“ segir Ari Steinn með áherslu og hlær.

Það myndast öðruvísi stemning í Heitir pottar um helgar og …
Það myndast öðruvísi stemning í Heitir pottar um helgar og á rauðum dögum því þá er meira um að öll fjölskyldan komi og velji saman pott. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Seldu 200 potta á einum degi

Ari Steinn talar um að gaman sé að fylgjast með hverjir það séu sem komi frekar um helgar í verslunina en virka daga. „Almennt eru nú fleiri sem koma í verslunina á virkum dögum en það sem er svo skemmtilegt við helgarnar er að þá kemur öll fjölskyldan saman að skoða pottana. Þá hafa allir nægan tíma og fjölskyldan kemur öll til að skoða, máta og velja pottinn í sameiningu sem mér finnst mjög fallegt. Á virkum dögum er meira um að einstaklingar komi og svo þarf að fara heim og ræða við alla fjölskylduna. Það er tilvalið að koma frekar um helgar með fjölskylduna og taka ákvörðun saman. Leyfa öllum að taka þátt,“ segir Ari Steinn og bætir við að annríkið í versluninni á rauðum dögum hafi komið á óvart.

„Við vildum bjóða upp á þessa þjónustu, einmitt fyrir þennan hóp sem kemst lítið frá en bjuggumst ekki alveg við þessari miklu traffík. Í raun eru þetta dagarnir þar sem salan gengur best. Við vorum til dæmis með útsölu á páskadag og það var stærsti dagurinn í sögu fyrirtækisins. Við seldum tæplega 200 potta á einum degi.“

Ari Steinn og Birkir eru góðir vinir og segja að …
Ari Steinn og Birkir eru góðir vinir og segja að það sé alltaf gaman í vinnunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alltaf fjör í vinnunni

Aðspurður hvernig hann hafi orku í alla þessa vinnu segir Ari Steinn að hann sé alls ekki einn í þessu. „Ég og Birkir Rafnsson tökum allar þessar vaktir. Við erum mest í þjónustunni og tökum á móti fólki um helgar sem og aðra daga. Við höfum unnið hvern einasta dag síðan í janúar og erum fullir af orku. Við erum 24 ára snillingar og erum duglegir að hreyfa okkur, borða hollt og erum spenntir fyrir vinnunni og lífinu. Að ógleymdu því að kunna að slaka vel á í heitum pottum og í sánu. Það er lykillinn að því að geta þraukað svona marga vinnudaga í röð,“ segir Ari Steinn og viðurkennir að hann og Birkir séu einstakir vinir.

„Við kynntumst þegar við vorum í framhaldsskóla þannig að við höfðum þekkst í mörg ár áður en við fórum að vinna saman. Samstarfið hefur gengið rosalega vel og við erum alltaf að peppa hvorn annan upp. Það er geggjað góður mórall hjá okkur og ég hef ekki upplifað svona góðan móral áður. Við erum spenntir að mæta í vinnuna því það er svo gaman.“

Það var opið í Heitum pottum á páskadag og það …
Það var opið í Heitum pottum á páskadag og það varð söluhæsti dagur verslunarinnar frá upphafi enda seldust 200 pottar þennan eina dag. Ljósmynd/Aðsend

Góð og mikil þjónusta í Heitir pottar

Ari Steinn talar um að eftirspurn eftir heitum pottum sé sífellt að aukast en sala hjá Heitum pottum ehf. hafi tvöfaldast á síðustu tveimur árum. Það eru þó ekki bara gæði pottanna og sánanna útskýrir það því Heitir pottar er fyrirtæki sem er þekkt fyrir góða þjónustu og það er eitthvað sem fólk kann að meta. „Þetta er rosalega mikið þjónustustarf þannig að við Birkir erum oft að tala við fólk á kvöldin og leysa vandamál, ef einhver koma upp. Þannig að maður er í raun í vinnunni allan daginn alla daga.

Við veitum góða og mikla þjónustu. Það er þannig sem maður lifir af í þessum bransa. Það vill enginn versla við pottasalann sem gerir ekki við potta. Ef eitthvað bilar eða verður slappt með tímanum þá er gott að vera í öruggum höndum, að geta veitt góða þjónustu og vera með góða fræðslu. Það er einmitt það sem við gerum á hverjum einasta degi.“

Pottarnir frá Heitir pottar eru með sérstaklega sterka skel úr …
Pottarnir frá Heitir pottar eru með sérstaklega sterka skel úr trefjagleri sem endist léttilega í 30 ár. Ljósmynd/Aðsend

Músheldir pottar með sterkri skel

Aðspurður hvaða pottar séu vinsælastir þessa dagana segir Ari Steinn að hitaveitupottar sem eru tilbúnir til tengingar séu sennilega vinsælastir þessa dagana. Hins vegar sé alltaf eftirspurn eftir öllum tegundum af pottum því það sé misjafnt hvað henti hverjum og einum. „Við bjóðum upp á alls konar lausnir. Það er þessi gamaldagslausn, eins og við köllum hana, sem er skelin og svo þarf að byggja í kringum hana. Svo er hægt að fá hitaveitupott sem er tilbúinn til tengingar en þá er búið að gera alla smíðavinnu og þarf bara að tengja pottinn við vatn. Við höfum séð mestu aukninguna í sölu á þess háttar pottum. Rafmagnspottarnir eru í raun bara sitt eigið fyrirbæri því það þarf enga hitaveitu. Pottinum er smellt í samband við rafmagn og hann fylltur með köldu kranavatni með garðslöngu, það þarf því enga píparavinnu fyrir þá sem mörgum þykir kostur.

Það sama gildir um saltvatnspottana sem eru háþróaðir rafmagnspottar. Arctic Spa-saltvatnspottarnir framleiða 100% hrein hreinsiefni úr saltinu þannig að það þarf ekki að gera neitt. Það er skipt um vatn á tíu mánaða fresti, sem sumum finnst kannski ekki hljóma geðslega en vatnið er í meiri vatnsgæðum en glæný hitaveita því potturinn er alltaf að hreinsa sig. Annar kostur við að setja kalt kranavatn í pottinn er að þá er enginn kísill í vatninu sem fer betur með pottinn sjálfan,“ segir Ari Steinn og bætir við að skelin í pottunum hjá Heitum pottum sé sérstaklega sterk enda byggð úr trefjagleri.

„Skelin endist því léttilega í 30 ár enda mótast hún hvorki né slitnar með tímanum. Svo eru pottarnir okkar músheldir sem er rosalegur kostur því mýsnar sækja einmitt í hita og raka. Það eru alls ekki allir pottar sem seldir eru hér á landi músheldir en það vill enginn heyra nag og skrið þegar verið er að njóta í pottinum eftir langan vinnudag,“ segir Ari Steinn alvarlegur.

Ari Steinn ásamt föður sínum, Kristján Berg Ásgeirssyni, og Birki …
Ari Steinn ásamt föður sínum, Kristján Berg Ásgeirssyni, og Birki en allir eru þeir miklir reynsluboltar þegar kemur að heitum pottum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ný lifandi heimasíða

Ari Steinn er þúsundþjalasmiður og tók að sér að búa til heimasíðuna heitirpottar.is frá grunni sem hann segir að hafi verið skemmtilegt en þó eilítið krefjandi verkefni. „Ég lærði það af pabba að stundum þarf maður bara að fara í djúpu laugina, þá lærir maður best. Við vildum heimasíðu sem var meira lifandi og breytileg en það er líka smá heimagerður stíll á henni sem er sjarmerandi. Ég set reglulega inn ný tilboð, nýjar vörur og einhverja skemmtilega texta. Hún er því síbreytileg enda sjáum við að traffíkin á síðuna hefur aukist mikið og til að mynda jókst aðsóknin um 40% frá síðasta ári og um önnur 50% frá árinu á undan. Á síðustu tveimur árum hefur aðsóknin því aukist verulega sem er einkar skemmtilegt,“ segir Ari Steinn sem finnst þó alltaf skemmtilegast að hitta fólk í eigin persónu.

„Þó heimasíðan sé frábær og þar sé hægt að skoða úrvalið þá er samt best að koma í eigin persónu, hitta okkur og taka spjallið. Við bítum alls ekki heldur erum að þjónusta og fræða allan daginn alla daga. Það er ýmislegt sem gott er að vita áður en fjárfest er í potti, til að mynda rekstrarkostnaður, góðar ábendingar varðandi viðhald og þrif og algeng mistök sem þarf að varast þegar fólk ætlar að setja niður pott eða kaupa sánu. Við erum svo sannarlega með puttann á púlsinum í bransanum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert