Tveir menn voru handteknir í gærkvöld eða nótt í tveimur aðskildum málum vegna ætlaðra fíkniefna og fjármuna sem fundust á þeim við almennt eftirlit.
Annar mannanna tók á rás við afskipti lögreglu en náðist eftir snarpa eftirför á fæti. Sá reyndist vera með nokkuð af ætluðum fíkniefnum í sölupakkningum og töluvert af fjármunum.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu lögreglu vegna verkefna hennar frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.
Lögreglu var tilkynnt um bifreið sem ekið var ógætilega og næstum á sjálfboðaliða við gæslustörf í Miðnæturhlaupi Suzuki. Bifreiðin fannst ekki þrátt fyrir leit lögreglu.
Lögreglumenn við almennt umferðareftirlit urðu varir við að leigubíl var ekið nokkuð greitt fyrir aftan þá og án þess að ökumaður tryggði nægilegt bil milli ökutækja. Ökumaður leigubílsins blikkaði háu ljósunum á lögreglu og gaf til kynna að hann vildi komast fram úr komast fram úr.
Lögreglumenn könnuðu nánar ástand ökumannsins enda hegðun hans ekki í takt við það sem ætla má frá atvinnubílstjóra. Má hann eiga von á sekt fyrir of hraðan akstur og fyrir að tryggja ekki nægilegt bil milli ökutækja, að því er segir í tilkynningu lögreglu.
Alls voru 65 mál bókuð í kerfum lögreglu á tímabilinu og tveir gista fangageymslur lögreglu.