Óskað var eftir aðstoð lögreglunar vegna slagsmála í miðborg Reykjavíkur þar sem nokkrir voru sagðir hafa veist að einum.
Þegar lögreglumenn ætluðu að ræða við þann sem hafði sig mest í frammi hóf hann að streitast á móti þeim. Hann hafði ekki erindi sem erfiði og var á endanum handtekinn og fluttur á lögreglustöð, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gærkvöldi til kl. 5 í morgun.
Óskað var aðstoðar lögreglu þar sem einstaklingur kvaðst hafa orðið fyrir líflátshótunum og líkamsárás. Málið er í rannsókn.
Tilkynnt var um umferðarslys í Reykjavík þar sem bifreið var ekið á byggingu. Ökumaðurinn slasaðist lítillega. Hann var vistaður í fangaklefa grunaður um að aka undir áhrifum áfengis.
Óskað var aðstoðar lögreglu að ölhúsi vegna einstaklings í annarlegu ástandi og að angra fólk. Sá er grunaður um brot á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg. Þar sem hann var í mjög svo annarlegu ástandi og ekki skýrsluhæfur var hann vistaður í fangaklefa.
Tilkynnt var um umferðarslys í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði og Garðabæ þar sem bifreið var ekið á staur. Engin slys urðu á fólki.
Ökumaður bifreiðar var stöðvaður í Reykjavík eftir að hafa ekið gegn rauðu ljósi. Hann reyndist vera sviptur ökuréttindum og er grunaður um að aka undir áhrifum ávana og/eða fíkniefna. Hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.
Ökumaður bifreiðar var stöðvaður við almennt umferðareftirlit. Hann reyndist ekki vera með ökuréttindi meðferðis. Þá reyndist vinstra aftur ljós bifreiðarinnar ekki vera virkt, auk þess sem bifreiðin var á tveimur ónýtum hjólbörðum. Ökumaðurinn á von á sekt og bifreiðin var boðuð í skoðun.
Í umdæmi lögreglunnar í Kópavogi og Breiðholti var tilkynnt um líkamsárás fyrir utan fjölbýlishús. Einnig var tilkynnt um einstakling í annarlegu ástandi að reyna að komast inn í sameign.
Nokkrir ökumenn eiga jafnframt von á sekt fyrir að aka bifreiðum sínum yfir leyfilegum hámarkshraða.