Þrír sjúkrabílar og dælubíll frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðir til vegna vinnuslyss nærri gatnamótum Suðurlandsbrautar og Grensásvegar í Reykjavík fyrir skömmu.
Dælibíllinn var sendur til aðstoðar á vettvangi en atvikið hljómaði verr en það var í raun, að sögn Steinþórs Darra Þorsteinssonar, varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Einn var fluttur slasaður á slysadeild en Steinþór gat ekki sagt til um hver meiðsli hans væru. Sá slasaði er með fulla meðvitund.