Nauðgunardómur yfir Husin stendur

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Landsréttar gegn Naj­eb Mohammad Al­haj Hus­in, fyrr­ver­andi starfsmanni í grunn­skóla á Norður­landi, fyr­ir margít­rekuð kyn­ferðis­brot gegn stúlku á barns­aldri sem var nem­andi við skól­ann.

Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi Husin í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir brotin en Landsréttur þyngdi dóminn í fimm ára fangelsi.

Héraðsdóm­ur Norður­lands vestra sak­felldi Husin fyr­ir kyn­ferðis­brot gegn barni und­ir 15 ára aldri en sýknaði hann af ákæru um nauðgun. Lands­rétt­ur taldi hins veg­ar að maður­inn hafi gerst sek­ur um nauðgun og dæmdi hann til fimm ára fang­elsis­vist­ar.

Husin 29 ára og stúlkan 14

Brot­in áttu sér stað í nóv­em­ber 2021 fram í mars 2022 en Hus­in var þá 29 ára en stúlk­an 14 ára. Brot­in voru ým­ist fram­in í hús­næði grunn­skól­ans, í bíl sak­born­ings­ins eða á heim­ili hans. Staðfest er í gögn­um máls­ins að þau hafi valdið brotaþola mik­illi van­líðan. 

Husin er gefið að sök kyn­ferðis­leg áreitni gegn barni með því að hafa í tvígang í hús­næði grunn­skól­ans kysst stúlk­una og káfað á brjóst­um henn­ar og kyn­fær­um utan klæða.

Þá var hann ákærður fyr­ir nauðgun með því að hafa ít­rekað haft sam­ræði og önn­ur kyn­ferðismök við stúlk­una án henn­ar samþykk­is og að hafa haft barn­aníðsefni í vörsl­um sín­um á tíma­bil­inu frá 18. mars til 8. maí 2022 en um var að ræða ljós­mynd sem sýndi stúlk­una á kyn­ferðis­leg­an hátt og var vistuð í síma hins ákærða.

Samþykki hafi ekki legið fyrir

Landsréttur taldi Husin hafa beitt stúlkunni ólögmætri nauðung og var hann því einnig sakfelldur fyrir brot gegn því ákvæði. Hæstiréttur hefur staðfest niðurstöðu Landsréttar.

„Þá var fallist á með Landsrétti að háttsemi [Husin] samkvæmt öðrum ákærulið svaraði til hugtaksins „annars konar ólögmæt nauðung“ í skilningi 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga og því teldist samþykki brotaþola, gefið af frjálsum vilja í skilningi málsgreinarinnar, ekki hafa legið fyrir þegar [Husin] viðhafði þá háttsemi sem honum var gefin að sök í þeim ákærulið. Niðurstaða Landsréttar um heimfærslu háttseminnar til beggja refsiákvæðanna og um fimm ára fangelsisrefsingu var því staðfest,“ segir í dómi Hæstaréttar.

Husin var einnig gert að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins fyrir Hæstarétti, samtals 1.696.218 krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert