Gunnar Smári Egillson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands, var sniðgenginn í kosningu til framkvæmdastjórnar flokksins á aðalfundi sósíalista í Bolholti í dag.
Sanna Magdalena Mörtudóttir, sem er enn pólitískur leiðtogi flokksins, segist ósátt við vinnubrögð nýrrar stjórnar, en hallarbylting varð á aðalfundinum.
Tveir þungavigtarmenn hafa strax sagt sig úr flokknum.
Davíð Þór Jónsson, sem var oddviti flokksins í Suðvesturkjördæmi, segir að „tossalisti“ hafi verið látinn út ganga með fyrirmælum um hverja ætti að kjósa. Listin hafi greinilega verið til höfuðs Gunnars Smára og þeirra sem væru honum hliðhollir. Flestir hafi kosið „heilalaust“ eftir þeim lista.
„Þetta er ekki lýðræði heldur misbeiting þess,“ segir Davíð í samtali við mbl.is sem segir ljóst að Karl Héðinn Kristjánsson, formaður Roða, sé leiðtogi þessarar hallarbyltingar en Karl og fleiri úr hans fylkingu hafa átt í opinberum erjum við Gunnar Smára og sakað flokksstofnandann um ofríki og andlegt ofbeldi.
Einn flokksmaður hefur birt tossalistann inni á Rauða þráðinum, umræðuvettvangi Sósíalistaflokksins, en flokkurinn hefur ekki gefið út opinberlega hverjir náðu kjöri.
„Fólk sem flokkurinn stendur í þakkarskuld við, og ég tek svo djúpt í árina að segja að flokkurinn eigi þessu fólki líf sitt að launa, það hlaut ekki brautargengi og galt þess að vera of handgengið Gunnari Smára,“ segir Davíð.
Sanna Magndalena Mörtudóttir heldur þó velli sem pólitískur leiðtogi flokksins þó hún sé hafi lýst yfir stuðnigni við Gunnar Smára, enda „óumdeild“ í flokknum að sögn Davíðs.
Sanna segist við mbl.is ekki vera sátt við vinnubrögðin á fundinum.
„Sérstaklega fannst mér vinnubrögðin sem ég sá í aðdraganda og síðan á fundinum ekki vera góð vinnubrögð en ég þarf að taka næsta sólarhring í að melta stöðuna,“ segir Sanna sem vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
Davíð kveðst hafa gengið hlutlaus inn á fundinn, en eftir fundinn hafi hann áhyggjur af framtíð flokksins. Hann kveðst sjálfur liggja undir feldi hvort hann haldi áfram í flokknum eða ekki, en greinilega sé flokkurinn klofinn. Hann vill þó leyfa rykinu að setjast.
Sumir hafa þegar sagt sig úr flokknum. Þeirra á meðal er María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp, sem bauð sig fram fyrir flokkinn árið 2021. Hún skrifar á Rauða þráðinn: „Ég get ekki með góðri samvisku starfað með því fólki sem náði á blað í dag. Ég tel þau ekki starfa í þágu þeirra hópa sem ég er í forsvari fyrir. Hef sagt mig úr flokknum.“
Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtakanna og fyrrv. frambjóðandi flokksins, birti færslu á Rauða þræðinum þar sem hann segist hafa sagt sig úr flokknum eftir uppákomu dagsins og „óvandaða og ólýðræðislega framvindu flokksbrots áskorenda“.
„Ég hef ekki áhuga á að starfa innan þeirrar allsherjarstjórnar og menningar sem varð ofan á við kosningar á aðalfundi,“ stóð í færslunni.
Fleiri segjast hafa sagt sig úr flokknum og heitar umræður hafa skapast inn á Rauða þræðinum. Ekki náðist í Gunnar Smára við vinnslu fréttar.