„[...] þá þurfið þið engar áhyggjur að hafa af öðru en að hægt verði að kjósa Vinstri græn næsta vor með einum eða öðrum hætti,“ segir í fréttabréfi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs til flokksmanna, en þar er vitnað í færslu Stefáns Pálssonar á samfélagsmiðlum.
Tilefnið er frétt Morgunblaðsins upp úr Dagmálaþætti dagsins þar sem Líf Magneudóttir oddviti VG lætur eftirfarandi orð falla:
„Ég veit ekki einu sinni hvað verður ákveðið á vettvangi Vinstri-grænna, hvort við yfirhöfuð bjóðum fram eða hvað við ætlum að gera. Það ræðst á öðrum stað, allavega ekki hérna í Dagmálum.“
Fyrirsögn á forsíðu Morgunblaðsins „Óvíst hvort VG bjóði fram í borginni“ olli titringi meðal flokksmanna, en Stefán Pálsson segir hana í færslu sinni „glannalega“ og er einnig vísað til þess orðalags í fréttabréfi flokksins.
Ummæli Lífar Magneudóttur, sem fyrirsögnin byggir á, má sjá í myndspilaranum hér fyrir ofan. Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni með því að smella á hlekkinn neðst í fréttinni.
Hvorki Stefán né bréfritari flokksins skýra nánar hvað „með einum eða öðrum hætti“ þýðir, en orðrómur hefur verið á kreiki um að einhverjir flokka núverandi meirihluta í borginni hafi áhuga á að bjóða fram saman í samkrulli í sveitarstjórnarkosningum næsta árs.
Ekkert hefur enn verið staðfest í þeim efnum en orðalag Stefáns um að kjósendur muni geta kosið flokkinn með einum eða öðrum hætti, gefur til kynna að fleiri möguleikar komi til greina en að VG bjóði fram sjálfstætt, en það hefur flokkurinn gert undanfarin ár.
Eins og kunnugt er beið flokkurinn afhroð í þingkosningum á liðnum vetri og féll út af þingi. Í nýjasta borgarvita Maskínu, sem er frá því í apríl, mældist fylgi flokksins í borginni 3%.