Umgangast ofbeldismenn á meðan beðið er brottvísunar

Einstaklingum sem ekki hafa landvistarleyfi eru vistaðir á Hólmsheiði í gæsluvarðhaldi þar til að brottvísun kemur. Þó reynt sé að stýra því eftir fremsta megni hverja hælisleitendurnir eiga samneyti við þá gerist það engu að síður að þeir sem bíða brottflutnings umgangist ofbeldismenn í fangelsinu.

„Yfirleitt eru menn ekki í einangrun heldur í samvistun við aðra fanga á Hólmsheiði,“ segir Birgir. 

Og eru þeir jafnvel að umgangast ofbeldismenn?

„Já, það er allur gangur á því. Við reynum eftir fremsta megni að stýra því,“ segir Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri í Dagmálum. 

Vantar pláss fyrir fanga

Birgir tók við sem settur fangelsismálastjóri fyrir rúmum sjö mánuðum og segir að plássleysi hafi reynst mikil áskorun.

Ítrekað gerist það að þeir sem dæmdir hafa verið til tveggja ára fangelsisvistunar eða minna komist ekki að og afpláni þess í stað með samfélagsþjónustu.

Fangelsið á Hólmsheiði.
Fangelsið á Hólmsheiði. mbl.is/Árni Sæberg

Aukin fíkniefnainnflutningur, stífari landamæragæsla, fleiri brottvísanir og fleiri þyngri dómar með lengri afplánunartíma skýra þrýsting á kerfið. 

Að jafnaði eru um 70 af 180 plássum í fangelsum tekin undir gæsluvarðhaldsfanga.

Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri, segir frá þeim áskorunum sem fangelsin …
Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri, segir frá þeim áskorunum sem fangelsin glíma við í Dagmálum mbl.is. mbl.is/Hallur Már
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert