Rússar eiga ekki möguleika ef NATO stendur saman

Samsett mynd af Pútín og Kallas.
Samsett mynd af Pútín og Kallas. AFP

Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, segir að Rússar eigi ekki möguleika gegn Atlantshafsbandalaginu, NATO. Bandalagið þurfi engu að síður að standa saman þegar kemur að því að halda aftur af þeim.

Leiðtogafundur NATO verður haldinn í næstu viku í Hollandi. Aðildarríki sambandsins eru undir þrýstingi frá Bandaríkjunum um að auka stórlega við framlög sín til hernaðarmála. Kallas varar við því að slíkt dugi ekki til eitt og sér til að stöðva Rússa.

„Verðum að standa saman“

„Í dag eiga Rússar ekki möguleika gegn NATO og ESB. En við verðum að standa saman,” sagði Kallas á Evrópuþinginu.

„Þegar leiðtogar NATO hittast í næstu viku er álíka mikilvægt að standa saman og að eyða meiri peningum í varnarmál.”

Kaja Kallas.
Kaja Kallas. AFP/Nicolas Tucat

Óvissa um áreiðanleika Bandaríkjanna

23 aðildarríki NATO eru einnig í Evrópusambandinu en þar eru aðildarríkin 27 í heildina. Óvissa hefur ríkt innan bandalagsins um áreiðanleika Bandaríkjamanna undir stjórn forsetans Donalds Trump og hversu mikinn þátt þeir eru tilbúnir til að taka í vörnum Evrópu.

Á ráðstefnu í Kanada í gær tókst leiðtogum G7-ríkjanna ekki að búa til sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir fordæmdu Rússa vegna aukins þunga í árásum þeirra á Úkraínu, eftir að Trump yfirgaf ráðstefnuna snemma.

Trump hefur hingað til ekki tekist að binda enda á stríðið í Úkraínu með samningaviðræðum við Rússa.

Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Volodimír Selenskí Úkraínuforseti á samsettri mynd.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Volodimír Selenskí Úkraínuforseti á samsettri mynd. AFP/Gavriil Grigorov/Nhac Nguyen

Varar við eyðslu Rússa í varnarmál

Kallas varar við aukinni eyðslu Rússa í hernaðarmál og segir að öðrum þjóðum í Evrópu stafi hætta af því.

Ónýtur leikskóli í úkraínsku hafnarborginni Odesa eftir drónaárás Rússa í …
Ónýtur leikskóli í úkraínsku hafnarborginni Odesa eftir drónaárás Rússa í gær. AFP/Oleksandr Gimanov

„Á síðasta ári eyddu Rússar meira í varnarmál en ESB samanlagt. Á þessu ári eru Rússar að eyða meira í varnarmál en í eigið heilbrigðiskerfi, menntakerfi og félagslega kerfið samanlagt,” sagði hún.

„Þetta er langtímaáætlun fyrir átök til langs tíma. Þú eyðir ekki svona miklu í herinn ef þú ætlar ekki að nota þessa peninga.”

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert