Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun koma saman á föstudag til að ræða yfirstandandi stríð milli Ísraels og Írans. Gvæjana sem fer nú með formennsku í ráðinu tilkynnti þetta rétt í þessu.
Neyðarfundur var haldinn í ráðinu í kjölfar árása Ísraels síðastliðinn föstudag en samkvæmt heimildum AFP-fréttaveitunnar er fundurinn sem nú hefur verið boðaður haldinn að beiðni Írans, með stuðningi Rússlands, Kína og Pakistans.