Íranar hefja loftárásir á Ísrael

Reykur stígur upp af einu af mörgum skotmörkum Ísraela í …
Reykur stígur upp af einu af mörgum skotmörkum Ísraela í írönsku höfuðborginni Teheran í dag. Íranar kveðast nú hafa gert gagnárás sem sé nýhafin. AFP

Íranar hafa samkvæmt þarlendum miðlum hafið loftárásir að nýju á Ísraelsmenn í væringum sem hófust með árásum þeirra síðarnefndu á föstudaginn í því augnamiði að setja Írönum stólinn fyrir dyrnar í kjarnorkumálum, en Ísraelar telja þessa fornu fjandþjóð sína hyggjast útvega sér kjarnavopn sem gætu haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar í Ísrael yrði þeim beitt.

Kveðst ísraelski flugherinn hafa grandað tveimur F-14 Tomcat-orrustuþotum á flugvelli í írönsku höfuðborginni Teheran og leggur fram myndskeið til jarteikna sem sýnir eina slíka í sigti ísraelskrar orrustuþotu og skömmu síðar í ljósum logum.

Önnur F-14-orrustuþotan sem Ísraelar sprengdu á flugvelli í Teheran í …
Önnur F-14-orrustuþotan sem Ísraelar sprengdu á flugvelli í Teheran í dag. Vopnasérfræðingur BBC segir þá þotu, og aðra til sem sprengd var, hafa staðið á sama stað frá því í hitteðfyrra og líkast til hafa lokið þjónustuferli sínum. Myndskeið/Ísraelski flugherinn

Að sögn flughersins var írönsku F-14-þotunum ætlað að fljúga til móts við þotur Ísraela, það skrifar Chris Partridge, vopnasérfræðingur fréttastofu breska ríkisútvarpsins BBC, en lætur þess jafnframt getið að vængir F-14-vélarinnar á myndskeiðinu séu í öftustu stöðu og líti því ekki út fyrir að hún hafi verið á leið í áætlað flugtak. Auk þess hafi þoturnar í myndskeiðinu staðið hreyfingarlausar á sama stað frá því í hitteðfyrra og hafi því líkast til lokið ferli sínum fyrir löngu.

Geti skotið að vild

Getur Partridge þess einnig að þotufloti Írana sé kominn af léttasta skeiði og hafi ekki roð við nýjustu framleiðslu vestrænna framleiðenda á þessum vettvangi sem ísraelski flugherinn hefur á að skipa. Hafi Ísraelar enda lýst því yfir í dag að þeir hefðu töglin og hagldirnar í loftrýminu yfir Íran og gætu nýmóðins þotur þeirra skotið að vild með hárnákvæmum miðunarbúnaði á skotmörk í Íran – engin þörf væri á að beita þar langdrægum flugskeytum úr mikilli fjarlægð.

F-14-þotan í ljósum logum.
F-14-þotan í ljósum logum. Myndskeið/Ísraelski flugherinn

Ríkissjónvarpsstöð í Íran vitnar í herinn þar í landi sem kveður stjórnvöld hafa sent íbúum „hernumdu svæðanna“, það er að segja Ísraels, þá aðvörun að hafa sig á brott fýsti þá að halda lífi auk þess sem sjónvarpsstöðin greinir frá því að árásir Írana muni beinast að ísraelskum innviðum.

Þá kemur það fram í fréttum stöðvarinnar að írönsk stjórnvöld hafi skipað Ísraelum að rýma byggingar sjónvarpsstöðva sinna, Channel 12 og Channel 14, þar sem þeir fái nú að gjalda þess að hafa beint spjótum sínum að höfuðstöðvum íranska ríkissjónvarpsins.

BBC

AP

Reuters

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert