Warner Brothers Discovery greindi frá því í dag að fyrirtækið myndi skiptast í tvennt til þess að efla streymisþjónustu sína og önnur viðskipti.
Fyrirtækið mun skiptast í tvö hlutafélög sem verða skráð á markað undir nöfnunum „streymisveitur og kvikmyndaver“ annars vegar og „alþjóðleg kerfi“ hins vegar.
Í tilkynningu fyrirtækisins sagði að þetta ætti að gera hvoru fyrirtæki um sig kleift að „hámarka möguleika sína“ og að ljúka ætti við skiptin fyrir mitt ár 2026.
Efni HBO og Warner Brothers mun heyra undir „streymisveitur og kvikmyndaver“, ásamt kvikmyndaverum fyrirtækisins í Kaliforníu og Bretlandi.
Í tilkynningunni sagði að nýja fyrirtækið muni einblína á að stækka HBO Max.
Undir „alþjóðleg kerfi“ munu CNN og TNT Sports heyra.
David Zaslav, forstjóri Warner Brothers Discovery, mun stýra streymisþjónustunni og Gunnar Wiedenfels, fjármálastjóri Warner Brothers Discovery, mun stýra hinu fyrirtækinu.
„Með því að reka tvö aðskilin fyrirtæki í framtíðinni, munum við leggja betri áherslu á þessi goðsagnakenndu vörumerki,“ var haft eftir Zaslav í tilkynningunni.
Hlutabréf í Warner Brothers Discovery hækkuðu um 10,3% í morgun eftir að fréttirnar bárust.