Rússland undirbýr sókn í Dníprópetrovsk–hérað í mið-austurhluta Úkraínu í fyrsta sinn frá upphafi innrásarinnar.
Dníprópetrovsk er ekki meðal þeirra fimm úkraínsku héraða sem Rússland hefur gert formlegt tilkall til. Rússar tilkynntu áform sín fyrr í dag.
Um er að ræða mikilvægt námu- og iðnaðarsvæði Úkraínumanna. Sókn rússneska hersins gæti haft alvarlegar afleiðingar á efnahag landsins.
Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir í tilkynningu að skriðdrekar hefðu náð til Dónetsk í Úkraínu og þaðan haldi þeir för sinni áfram til héraðsins.
Um þrjár milljónir Úkraínumanna bjuggu í héraðinu fyrir innrás Rússa í Úkraínu 2022.
Að rússneski herinn sé að sækja inn á enn eitt svæði Úkraínumanna er bæði táknrænt og hernaðarlegt áfall fyrir úkraínska herinn sem hefur þolað mánuði af bakslagi.
Úkraínumenn hafa ekki brugðist við tilkynningunni enn sem komið er.