Stórfelld loftárás á Úkraínu

Í borginni Kharkív létust að minnsta kosti þrír og 17 …
Í borginni Kharkív létust að minnsta kosti þrír og 17 særðust, þar á meðal börn, eftir að Rússar gerðu árás á heimili og íbúðarblokkir. AFP/Sergey Bobok

Rússland sakaði Úkraínu í dag um að hafa óvænt frestað stórfelldum fangaskiptum og móttöku fallinna hermanna, sem löndin höfðu áður sammælst um í friðarviðræðum í Istanbúl fyrir tæpri viku. Úkraínumenn hafna ásökununum. 

Úkraínumenn segja enga dagsetningu hafa verið ákveðna um skiptin og sakaði rússnesk yfirvöld um að fylgja ekki eftir umsömdum skilmálum. 

Ásökunin kom fram nokkrum klukkustundum eftir að Rússland hóf stórfellda loftárás um alla Úkraínu og beindi spjótum sínum sérstaklega að borginni Kharkív sem er önnur stærsta borg Úkraínu.

Að minnsta kosti átta  létust í árás næturinnar og skothríð var við víglínuna, að sögn yfirvalda í Úkraínu.

Öflugasta árás á Kharkív frá upphafi stríðs

Kharkív varð fyrir „öflugustu árás frá upphafi stríðsins“, sagði Igor Terekhov borgarstjóri.

Í borginni létust að minnsta kosti þrír og 17 særðust, þar á meðal börn, eftir að Rússar gerðu árás á heimili og íbúðarblokkir.

Sex til viðbótar eru enn ófundnir og talið er að þeir hafi verið á iðnaðarsvæði sem varð fyrir árás.

Þrír létust í Donetsk-héraði sem er við víglínuna, þar sem hörðustu átök stríðsins hafa átt sér stað, og par lést í borginni Kherson, annarri borg nálægt víglínunni.

Viðbragðsaðilar í Kharkív báru slasaða manneskju út úr brennandi húsi …
Viðbragðsaðilar í Kharkív báru slasaða manneskju út úr brennandi húsi eftir loftárás Rússa. AFP/Sergey Bobok

Þorp víða í rúst

Frá því að innrás Rússa hófst í febrúar árið 2022 hafa tugþúsundir látist og milljónir neyðst til að flýja heimili sín þar sem borgir og þorp víðs vegar um austurhluta Úkraínu, sem liggur að landamærum Rússlands, hafa verið lögð í rúst.

Andrí Si­bíha, utanríkisráðherra Úkraínu, hvatti bandamenn í vestri til að refsa Rússlandi fyrir innrásina.

„Til að stöðva dráp og eyðileggingu Rússlands þarf að auka þrýsting og grípa til frekari aðgerða til að styrkja Úkraínu,“ sagði hann á samfélagsmiðlum.

Hétu hefndum

Úkraínski flugherinn sagði að Rússar hefðu beitt 206 drónum og níu flugskeytum í árásinni.

Varnarmálaráðuneyti Rússlands tilkynnti að gerð hefði verið „hópárás“ á „hergagnaiðnað“ í Úkraínu og bætti við að öllum „skotmörkum“ hefði verið náð.

Rússar hafa undanfarna daga lofað hefndum fyrir drónaárás Úkraínu síðastliðinn sunnudag á flugsveit þeirra, þúsundum kílómetra fyrir aftan víglínuna.

Daufar vonir um vopnahlé

Þessar hótanir eru nýjustu tilraunir Rússlands til að draga úr vonum um nýjar vendingar í vopnahlésviðræðum, sem og símtölum milli Pútíns og Donalds Trump Bandaríkjaforseta.

Þrátt fyrir að Trump hvetji til endaloka átakanna hafa yfirvöld í Rússlandi sett fram fjölda víðtækra krafna á Úkraínu sem forsendur fyrir vopnahléi.

Kröfurnar fela í sér að Úkraína dragi her sinn út úr fjórum héruðum sem Rússland gerir tilkall til, en her þeirra hefur ekki full yfirráð yfir, ásamt því að binda enda á hernaðarstuðning Vesturlanda og bann við inngöngu Úkraínu í NATO.

Volodimír Selenskí Úkraínu­for­seti hefur vísað þessum kröfum á bug, dregið í efa tilgang frekari vopnahlésviðræðna og kallað eftir leiðtogafundi sem hann sjálfur, Pútín og Trump sæki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert