Rússar gerðu umfangsmiklar drónaárásir víða í Úkraínu í nótt og drápu að minnsta kosti fjóra og særðu 20 í höfuðborginni Kænugarði, samkvæmt upplýsingum frá úkraínskum embættismönnum í dag.
„Kænugarður varð fyrir enn einni drónaárá. Björgunaraðilar eru að bregðast við afleiðingum á nokkrum stöðum víðs vegar um borgina,“ skrifaði neyðarþjónusta Úkraínu á Telegram.
Volodimír Selenski Úkraínuforseti sagði í dag að Rússar hafi skotið meira en 400 drónum og 40 eldflaugum á Úkraínu í nótt og hvatti hann bandamenn sína til að þrýsta á rússnesk stjórnvöld til að binda enda á stríðið.
Vitali Klitsjko, borgarstjóri í Kænugarði, segir að fjögur dauðsföll hafi verið staðfest í borginni og 20 hafi særst, þar af 16 sem voru fluttir á sjúkrahús.
Drónaárásir Rússa skemmdu járnbrautarteina á Kænugarðssvæðinu og þá brutust út eldar á nokkrum stöðum í borginni, þar á meðal í íbúðarhverfi. Í borginni Lutsk í vesturhluta Úkraínu særðust fimm.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur heitið hefndum eftir nýlega drónaárás Úkraínumanna á rússneskt landssvæði þar sem rússneskar sprengjuþotur að verðmæti milljarða dollara voru eyðilagðar.