Öryggisþjónusta Úkraínu hefur lýst á hendur sér árás á Kerch-brúna sem liggur á milli Rússlands og Krímskaga. Sprengingar urðu við brúna fyrr í dag.
Kerch-brúin, sem er 16 kílómetra löng, var vígð árið 2018, fjórum árum eftir að Rússar hernámu Krímskaga.
Umferð á brúnni, sem hrundi ekki við tilræðið, var stöðvuð í nokkrar klukkustundir eftir sprenginguna. Var hún opnuð aftur um klukkan tíu að staðartíma.
Brúnni var aftur lokað um klukkan fjögur að staðartíma í kjölfar annarrar tilkynntrar sprengingar að sögn breska ríkisútvarpsins BBC, en hefur nú aftur verið opnuð.
Úkraínsk stjórnvöld segja brúna vera lögmætt skotmark þar sem Rússar noti hana til að útvega her sínum birgðir á hernumdum svæðum í Úkraínu.
Sprengingin við brúna kemur í kjölfar stórfelldra drónaárása Úkraínumanna á sprengjuþotur Rússlands síðastliðinn sunnudag.